Í kjölfar umræðu um símafrí í skólum langar okkur í Foreldraráði Hafnarfjarðar að beina sjónum að því sem börnin fá þegar síminn víkur, meira rými fyrir leik, hreyfingu, samtöl, hlátur, vináttu og samveru.
Í samstarfi við Rec Media og grunnskóla í Hafnarfirði höfum við unnið tvö myndbönd þar sem börn og ungmenni fá sjálf orðið. Með þeim viljum við nálgast umræðuna um símafrí á jákvæðan og uppbyggilegan hátt og skapa samtal meðal barna, foreldra og skólasamfélagsins um það sem við viljum sjá meira af í skóladeginum.
Hvað gerist þegar síminn fær að víkja?
Í myndbandinu segja börnin sjálf frá því hvað þeim finnst skemmtilegast að gera í frímínútum. Þau segja frá leikjunum sínum og við sjáum gleðina, hreyfinguna, hláturinn, vináttuna og samveruna sem verður til þegar þau leika og eru saman.
Skilaboðin eru einföld: Meiri leikur. Meiri gleði. Meiri samvera.
Við óskuðum eftir því við grunnskóla Hafnarfjarðar að myndböndin yrðu sýnd á skólakynningum í upphafi skólaársins og/eða þeim deilt með foreldrum og skólasamfélaginu. Við vonum að þau geti orðið kveikja að góðu og jákvæðu samtali um símafrí, samveru og það skólaumhverfi sem við viljum skapa saman.
Yngsta stig og miðstig:
Efsta stig:
Sameiginlegt verkefni heimilis og skóla
Símafrí í skólum er ekki verkefni skólanna einna. Við trúum því að bestur árangur náist þegar skólar, foreldrar og börn standa saman og skilaboðin eru skýr og samhljóma.
Við í Foreldraráði Hafnarfjarðar fögnum því frumkvæði Ingu Sæland að skapa börnum og öllu skólasamfélaginu símafrí innan veggja skólanna. Við teljum það mikilvægt skref í þá átt að skapa meira rými fyrir nærveru, samskipti og samveru í skóladeginum. Skólarnir skapa rammann utan um skóladaginn, en við foreldrar gegnum ekki síður mikilvægu hlutverki. Með jákvæðu samtali heima fyrir og stuðningi við þann ramma sem skólarnir setja getum við saman hjálpað börnum og ungmennum að móta heilbrigðar venjur í kringum síma- og skjánotkun.
Þetta verkefni er hluti af áframhaldandi vinnu Foreldraráðs Hafnarfjarðar að velferð barna og heilbrigðum venjum í kringum skjánotkun. Fyrr á árinu færði ráðið meðal annars skólastjórum grunnskóla Hafnarfjarðar bókina Kvíðakynslóðina eftir Jonathan Haidt til að hvetja til sameiginlegs samtals heimila og skóla um þessi málefni. Lesa nánar um það verkefni hér.
Við viljum nefnilega ekki aðeins tala um það sem börnin eiga ekki að gera. Okkur langar líka að beina sjónum að öllu því sem við viljum gefa meira rými, leik, vináttu, samtölum, hreyfingu og samveru.
Hvatning til meiri leiks
Samhliða verkefninu færði Foreldraráð Hafnarfjarðar grunnskólum bæjarins táknræna gjöf í upphafi skólaárs, nokkur útileikföng sem tengjast meðal annars leikjum sem börnin sjálf nefna sem sína uppáhaldsleiki í frímínútum.
Gjöfin er kannski lítil en hugsunin á bak við hana er stærri. Hún er hvatning til að skapa meira rými fyrir leik, gleði og samveru í skóladeginum og áminning um að þegar síminn víkur getur eitthvað annað fengið að vaxa.
Við foreldrar og skólasamfélagið höfum sameiginlegt hlutverk. Við getum skapað rammann, hvatt til góðra venja og gefið börnum og ungmennum fleiri tækifæri til að horfast í augu, tala saman, leika og einfaldlega vera saman.
Leikur er lífsins gaman. Gefum leiknum meira pláss.





Foreldraráð Hafnarfjarðar